Enter Title

H3 Sérlausnir

Sniðnar að þínum þörfum

Sérkerfi fyrir H3

H3 er stöðluð heildarlausn í starfsmannamálum sem styður allt ferli mannauðsstjórnunar, frá umsókn til starfsloka.

Kerfið er engu að síður mjög sveigjanleg, sé aðlögunar þörf, og einnig ef viðskiptavinir kjósa að bæta við kerfið vegna séraðstæðna og nýta sér þannig samhæfinguna milli kerfiseininga auk samnýtingar á gögnum.

Tölvumiðlun hefur gert sérlausnir fyrir viðskiptavini í H3 þar sem viðskiptavinir vilja að utanumhald um starfsmannamál sé allt á einum stað, í stað margra óskyldra kerfa.

Grunnkerfi Tölvumiðlunar

Grunnkerfið (TMFW4 eða H3 Platform) er þróunarumhverfi byggð á Microsoft .NET tækni. Tölvumiðlun hefur þegar forritað margar einingar sem raða má eftir þörfum. Sérlausnir sem forritarar Tölvumiðlunar og forritarar hjá viðskiptavinum hafa unnið að og eru í vinnslu eru meðal annars:


  • Álagningakerfi fasteignagjalda
  • Landskrá fasteigna
  • Þinglýsingakerfi dómsmálaráðuneytisins
  • Grasagarðskerfi
  • Upplýsingakerfi fyrir leitarstöð Krabbameinsfélagið
  • Verkkerfi fyrir RÚV ohf.


Hér má lesa meira um Grunnkerfi Tölvumiðlunar.


Engar tvískráningar

Markmið sérlausna í H3 er meðal annars að einfalda verklag og eyða margskráningu sömu upplýsinga.


Uppfærslur

Vegna sveigjanleika í uppbyggingu H3, þá hafa sérlausnir engin áhrif á uppfærslur kerfisins, en notendur uppfæra kerfið sjálfir yfir internetið, fylgjast með nýjum útgáfum einstakra kerfiseininga og uppfærslusögu eigin kerfa frá sinni tölvu.

Hagkvæm lausn

Þar sem grunnvirkni er að öllu leyti til staðar í kerfinu, þá þarf ekki að byrja frá grunni við gerð sérlausna. Þetta felur í sér mikinn tímasparnað sem skilar sér í hagkvæmari lausn fyrir viðskiptavini.

 

Logos

Agile Microsoft Oracle Carestream