Enter Title

H3 stjórnun

Upplýsingagátt stjórnenda


 

H3 stjórnun veitir stjórnendum aðgang að upplýsingum um sitt starfsfólk sem þeim er heimilt að fá aðgang að.  Þannig fá stjórnendur góða yfirsýn yfir sitt fólk, stöðu og styrkleika þess.  Tölvumiðlun hefur nýlega gefið út nýjan biðlara sem notaður er fyrir H3 stjórnun.

Live Tabs

Launaupplýsingar

Hafi stjórnandi til þess heimild er hægt að gefa honum kost á að skoða launaupplýsingar sinna starfsmanna.  Þannig getur stjórnandi til dæmis fylgst með því hvernig yfirvinna eða starfskjör þróast og gripið í taumana ef þróun er ekki eins og til var ætlast.  
 

Mannauðsupplýsingar

Auk launaupplýsinga er hægt að veita stjórnendum allar upplýsingar um sitt starfsfólk úr öðrum einingum H3.  Þannig geta stjórnendur fylgst með námskeiðssókn, starfsmannasamtölum, menntun eða öðru því sem þeir vilja og þurfa að fylgjast með.


 

Ráðningaupplýsingar

Hafi stjórnandi óskað eftir ráðningu nýs starfsmanns er hægt að veita honum beinan aðgang að umsóknum í H3 ráðningar og þannig gefa stjórnandanum færi á að skoða umsóknir, meta umsækjendur og vinna úr umsóknum.  Oft hefur stjórnandi besta þekkingu á þeim hæfileikum sem óskað er eftir og því heppilegt að stjórnandi vinni beint með umsóknir. Starfsmannahald og stjórnendur geta þannig unnið saman að ráðningunni án þess að umsóknir séu prentaðar út eða sendar á milli í tölvupósti.
 

Mælaborð/verkborð 

Auk þess að geta skoðað og skráð helstu upplýsingar um starfsfólk er stjórnendum boðið mælaborð sem sýnir á myndrænan hátt stöðu ýmissa upplýsinga vegna starfsmanna. Þannig mætti kalla fram línurit sem sýnir hvernig launaþróun eða starfsmannavelta hefur verið undanfarin tímabil.  

Auk mælaborðs er aðgangur að verkborði þar sem hægt er að sjá hvort einhver útistandandi mál tengd starfsfólki séu í vinnslu, hver staðan á þeim sé, hver sé með verkefnið, hvenær því eigi að vera lokið og svo framvegis.  Þannig gæti stjórnandi séð að í síðasta starfsmannasamtali setti Jóna Jónsdóttir sér markmið um að auka þekkingu á bókhaldi og að markmiðinu skyldi náð fyrir lok næstu viku.  

Stjórnandinn gæti einnig séð að nýr tölvuskjár sem Jónu var heitið í sama starfsmannasamtali hafi átt að vera afhentur í þar síðustu viku en hafi ekki skilað sér.
 

Ný tækni

Í H3 stjórnun er notast við nýjan biðlara (e. client) sem kallast H3+ og er notast við .NET tækni. Uppsetning kerfisins er mjög einföld. Notandinn þarf einungis að smella á hlekk sem getur verið staðsettur á innri vef eða sendur í tölvupósti, kerfið setur sig sjálft upp (ekki krafist „administrator“ réttinda) og er tilbúið til notkunar. Kerfið uppfærir sig sjálft þegar þess er þörf og gerir litlar kröfur til bandvíddar eða vélbúnaðar.

Logos

Agile Microsoft Oracle Carestream