Neyðarþjónusta er í síma 545 5000. Neyðarþjónustan er opin virka daga frá kl. 17:00 - 21:00 og um helgar og helgidaga frá kl. 11:00 - 17:00.
Tölvumiðlun býður einkanámskeið og hefðbundin námskeið sem eru haldin reglulega í húsakynnum fyrirtækisins. Hér fyrir neðan er helstu námskeiðum lýst nánar.
Á námskeiðinu er farið á markvissan hátt yfir kerfið. Námskeiðið hentar fyrir nýráðna launafulltrúa svo og fyrir þá aðila sem eru að taka við nýuppsettu kerfi þar sem fara þarf yfir allar stofntöflur frá grunni. Markmið námskeiðsins er að nemandinn fái heildarsýn yfir kerfið og geti að því loknu fært laun og gengið frá öllum skilum. Farið er m.a. í stofnun launamanns, skráningu launa, uppsetningu lífeyrissjóða og stéttarfélaga. Þá eru nýjar útborganir stofnaðar og laun skráð. Farið ítarlega í frágang útborgunar og skil launatengdra gjalda. Verkefnavinna. Það er algjört grundvallaratriði að launafulltrúi sitji þetta námskeið ef á að fullnýta alla möguleika kerfisins.
Kennslan stendur yfir í tvo daga frá kl: 9 - 16 hvorn daginn fyrir sig, með klukkustundar matarhléi milli kl: 12 - 13. Skrá sig hér.
Stutt og hnitmiðað námskeið fyrir þá notendur sem vilja öðlast meiri færni í notkun kerfisins. Farið er í uppbótasöfnun og uppgjör uppbóta, reiknihópa, hlutfallaða fasta liði, orlofsskuldbindingu, skil á launatengdum gjöldum, orlofs og þrepahækkanir, afturvirkar launaleiðréttingar og hvaða valmöguleika við höfum til breytinga á launaseðli í stilli. Að auki er farið yfir það sem er nýjast í kerfinu á hverjum tíma. Skrá sig hér.
Þetta námskeið er ætlað notendum með takmarkaðan aðgang, hvort heldur sem er í hýsingarumhverfi Tölvumiðlunar þar sem ráðgjafar sjá um viðhald á ýmsum töflum og þeirra sem starfa í stærri launadeildum þar sem einn umsjónarmaður sér um sértækari aðgerðir. Markmið námskeiðsins er að nemandinn fái heildarsýn yfir kerfið og geti að því loknu fært laun og gengið frá öllum skilum. Farið er m.a. í stofnun launamanns, skráningu launa, uppsetningu lífeyrissjóða og stéttarfélaga. Þá eru nýjar útborganir stofnaðar og laun skráð. Farið ítarlega í frágang útborgunar og skil launatengdra gjalda. Verkefnavinna Skrá sig hér.
Markmið námskeiðsins er að nemendur fái heildarsýn yfir kerfið og geti að námskeiði loknu skráð og haldið til haga öllum upplýsingum um mannauð fyrirtækisins í kerfinu. Farið er á markvissan hátt yfir allar valmyndir og sýnt hvernig á að skrá og viðhalda upplýsingum um menntun, þekkingu, námskeið, hluti í vörslu o.fl. fyrir hvern starfsmann.
Þá er farið yfir virkni forsniðinna skjala, fylgiskjala, skjalaskáps og skipurits. Síðast en ekki síst er farið í öflugt greiningatól, teninginn, og sýnt hvernig hann nýtist, m.a. til að ná fram upplýsingum samkvæmt mismunandi skilgreiningum á starfsmannaveltu. Nemendur fá einnig tækifæri til að vinna verkefni í kerfinu og öðlast þannig frekari reynslu.
Skrá sig hér.
Markmið með námskeiðinu er að nemendur fái yfirsýn yfir kerfið og geti að námskeiði loknu annast ráðningar og skráð og haldið til haga öllum upplýsingum um ráðningarmál fyrirtækisins í kerfinu. Farið er á markvissan hátt yfir allar valmyndir og sýnt hvernig á að skrá, setja upp og viðhalda upplýsingum um laus störf, umsóknir, o.fl.. Þá er farið yfir feril ráðningar auk virkni skjalaskáps og flutning umsækjenda yfir í H3 laun og H3 mannauð. Skrá mig hér.
Farið er á markvissan hátt yfir kerfið. Markmiðið er að nemandinn geti eftir námskeiðið nálgast allar upplýsingar um launakostnað á einum stað og greint þær með einföldum hætti. Greiningar eru framkvæmdar í teningi þar sem hægt er að velta gögnum fram og til baka og breyta þannig ásýnd þeirra á svipstundu. Farið er yfir allar fyrirspurnir í kerfinu og gerðar æfingar. Í desember er lögð áherslu á áramótin. Skrá mig hér.
Farið er á markvissan hátt yfir kerfið og nýtist náskeiðið jafnt þeim sem eru að byrja að nota kerfið og þeim sem unnið hafa í því um langan tíma.
Markmiðið er að nemandinn fái heildarsýn yfir kerfið og geti eftir námskeiðið notað kerfið á markvissari hátt og nýtt sér möguleika þess til meiri fullnustu.
Farið er yfir ferli áætlunargerðar í SFS fjárhagskerfi, ný áætlun gerð, framreikningur framkvæmdur, breytingar á áætlun og skýrslur kynntar. Skrá sig hér.
Farið er á markvissan hátt yfir kerfið. Markmiðið er að nemandinn geti eftir námskeiðið nálgast allar upplýsingar í SFS-inu á einum stað og greint þær með einföldum hætti. Greiningar eru framkvæmdar í teningi sem gerir kleift að velta gögnum fram og til baka og breyta þannig ásýnd gagnanna á svipstundu. Farið er yfir allar fyrirspurnir í kerfinu og gerðar æfingar. Skrá mig hér.