H3 er upplýsingakerfi sem aðstoðar stjórnendur við utanumhald um mannauðsmálin.
Heildarlausn í mannauðsmálum
Kerfið samanstendur af einingunum laun, mannauður, ráðningar, greiningar, fræðsla, vefþjónustur, áætlanir, birgðir, dagpeningar, starfsmenn og stjórnun.
Í stjórnunareiningunni er notendavænt mælaborð og myndrænar upplýsingar í þægilegu viðmóti. Hundruð viðskiptavinir nota kerfið í dag í meiri eða minna mæli en notendafjöldi fer ört vaxandi.
Samþætting
Allar kerfiseiningar í H3 eru samþættar og þannig er komið í veg fyrir tvískráningar sömu upplýsinga. Breytingar þarf því aðeins að framkvæma einu sinni. Gögn flæða milli kerfiseininga, þar sem við fáum mismunandi sýn á sömu gögnin. T.d. eru sömu upplýsingar um starfsmenn aðgengilegar bæði í launakerfi og mannauð og jafnvel á vefnum og sé þeim breytt í einu kerfinu, sést breytingin samstundis í hinu.
H3 tekur á móti tíma- og launafærslum frá viðverukerfum og skilar bókhaldsfærslum til allra bókhaldskerfa. Einnig getur H3 skilað upplýsingum og skýrslum á innri/ytri vefsíður eða í Excel til greiningar, áætlana og myndrænna framsetninga.
Smelltu hér til að skoða hvað er nýtt í H3 2012!
Staðlað kerfi
H3 er staðlað kerfi sem hentar óbreytt þörfum allra fyrirtækja á íslenskum markaði stórum sem smáum. Sveigjanleiki kerfisins gerir kleyft að sérsníða einstaka einingar að óskum notenda auk sérsmíði einstakra eininga.
Aðgangsstýringar
Öflugar aðgangsstýringar kerfisins gera kleyft að stýra aðgangi að gögnum með markvissum hætti, en hægt er að stýra aðgangi að kerfum, kerfishlutum og skjámyndum. Einnig er mögulegt að stýra aðgangi eftir skilgreindu hlutverki (role) eða einstaklingi. Þetta er grundvallaratriði hvað varðar starfsmannavef en einnig hvað varðar aðgengi stjórnenda beint að eigin gögnum.
Rekjanleiki aðgerða
H3 býr yfir fullkomnum rekjanleika á öllum skráningum og breytingum á færslum og gögnum. Allar aðgerðir eru merktar með fingrafari notanda en rekjanleiki aðgerða er mikilvægur öryggisþáttur í kerfum af þessum toga.
Sveigjanleiki
Grundvallaratriði við högun kerfisins er mikill sveigjanleiki því meðal annars er mögulegt að bæta við nýjum skráningarsviðum/gagnasviðum. Þessi sveigjanleiki er mjög mikilvægur til dæmis í mannauðshlutanum þar sem starfsmannastjórar og aðrir notendur eru að vinna með mismunandi upplýsingar, allt eftir eðli starfseminnar.
Samþætting kerfiseininga
Allar kerfiseiningar eru samþættar og þannig er komið í veg fyrir tvískráningar sömu upplýsinganna. Hverja breytingu þarf því aðeins að framkvæma einu sinni.
Gögn flæða milli kerfiseininga, því þær eru mismunandi sýn á sömu gögnin. T.d. eru sömu upplýsingar um starfsmenn aðgengilegar bæði í launakerfi og mannauð og sé þeim breytt í öðru kerfinu, sést breytingin samstundis í hinu.
Fjölbreytt virkni
Ýmis virkni og tengingar eru til staðar svo sem tengingar við önnur kerfi, verkferlar (gátlistar), verkefnalistar, villuprófun á bankareikningum, þjóðskrártenging, símaskrártenging ofl.
Nýjasta tækni
Þriðju kynslóðar forritunarmál eru notuð við hönnun H3 svo sem: (C++), Crystal Reports 9.0, Microsoft .Net lausnir og Oracle.
Gagnagrunnur
Undirliggjandi gagnagrunnur og sú tækni sem notuð er í H3, auðveldar mjög samskipti við önnur tölvukerfi. Haustið 2012 mun Microsoft SQL gagnagrunn taka við af Oracle.
Þriggja laga hönnun
H3 er hannað með þriggja laga högun. Það þýðir að lítil vinnsla fer fram á vinnustöð notandans sem auðveldar uppfærslur. Þessi högun gerir kleyft að dreifa álagi á fleiri vinnustöðvar hjá stærri fyrirtækjum. Uppbygging kerfisins tryggir því mikinn vinnsluhraða og gerir því kleyft að ráða við meira umfang.
H3 er heildarlausn. Allar kerfiseiningar í H3 eru samþættar og þannig er komið í veg fyrir tvískráningar sömu upplýsinga. Breytingar þarf því aðeins að framkvæma einu sinni. Gögn flæða milli kerfiseininga, þar sem við fáum mismunandi sýn á sömu gögnin.
H3 tekur á móti tíma- og launafærslum frá viðverukerfum og skilar bókhaldsfærslum til allra bókhaldskerfa. Einnig getur H3 skilað upplýsingum og skýrslum á innri/ytri vefsíður eða í Excel til greiningar, áætlana og myndrænna framsetninga.
Helstu kostir
- Notandinn stjórnar. Fullkomin yfirsýn yfir mannauðinn í þægilegu viðmóti.
- Staðlað kerfi með mikinn sveigjanleika og notendavænt viðmót til að færa laun, halda utan um dagpeninga, birgðir, ráðningar, fræðslumál, o.fl.
- Öflugt niðurbrot færsla t.d. á deild, verk, verkþátt, starfsstétt, o.fl.
- Aðgangsstýringar – mismunandi notendur hafa mismunandi þarfir.
- Rekjanleiki aðgerða – einfalt að leiðrétta.
- Samþætting kerfiseininga – þær einingar sem þú notar vinna saman.
- Einfalt uppfærsluferli – þú sækir nýjar uppfærslur þegar þér hentar.
- Þjónustuvefur Tölvumiðlunar – þú hefur aðgang að þjónustu allan sólarhringinn.
- Og fleira...
Tölvumiðlun gerir þjónustusamning við viðskiptavini fyrir H3 heildarlausnina sem greitt er af mánaðarlega. Innifalið í þjónustusamningi:
Uppfærslur
- Tölvumiðlun skuldbindur sig til að aðlaga kerfið að lagabreytingum og breytingum til að uppfylla kjarasamninga, án endurgjalds.
- Kerfið er í sífelldri þróun þar sem við fylgjumst með nýjustu tæknibreytingum og hlustum á þarfir notenda.
- Notandinn sækir sjálfur uppfærslur þegar nýjungar bætast við án þess að greiða þurfi sérstaklega fyrir það.
Þjónusta
- Við erum alla daga með ráðgjafa á símavakt sem aðstoðar notendur endurgjaldslaust í samræmi við þjónustusamninginn.
- Við flóknari úrlausnarefni bjóðum við upp á fjarhjálp þar sem ráðgjafi tengist vél notandans, fyrir það er aðeins rukkað 15 mínútur nema aðstoðin taki lengri tíma.
Hugmyndafræði á bakvið þjónustusamninginn
Viðskiptalíkan Tölvumiðlunar er hagkvæmt fyrir hagsmunaaðila. Viðskiptavinir geta gengið að því vísu að góð þjónusta er ávallt í boði.
Með þjónustusamningi liggur fyrir hvað viðskiptavinurinn greiðir fyrir kerfið. Áhættan á ófyrirséðum útgjöldum er ekki til staðar.