SFS veita
Fyrir hitaveitu og vatnsveitu
Hægt er að nota Veitukerfið hvort heldur er við hitaveitur eða vatnsveitur þar sem selt er eftir mæli. Í skráningu er skráð hús/íbúð, mælir, staða mælis, notandi o.s.frv. Hægt er að innheimta hvort heldur er samkvæmt áætlun, aflestri og fyrri áætlun síðan dregin frá eða hvort lesið er af í hvert skipti. Eftir skráningu mælaaflestrar reiknar kerfið útfrá síðustu skráningu og hvað hefur verið áætlað á viðskiptavin. Innheimtan er síðan búin til í þjónustuskrá eins og um reglubundna reikninga væri að ræða.
Kostir
Haldið er um alla vatnssölu í kerfinu til einstakra viðskiptavina, eftir mælum eða notkunarstað. Við skráningu aflestrar reiknar kerfið notkun útfrá síðasta álestri og áætlun sem skráð hefur verið. Mögulegt er að hlutfalla greiðslu eins mælis á marga notendur t.d. eftir eignarhluta.